Besta sætið
Podkast av bestasaetid
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Vísis og Stöðvar 2 Sports. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.
Prøv gratis i 14 dager
Etter prøveperioden kun 99,00 kr / Måned.Avslutt når som helst.
Alle episoder
36 EpisoderArnór Smárason lét gott heita og lagði knattspyrnuskóna á hilluna á dögunum, 36 ára gamall. Arnór var snemma talinn bera af á fótboltavellinum og var valinn besti leikmaður Shellmótsins 10 ára gamall og aðeins 15 ára var hann fluttur einn og óstuddur í atvinnumennsku til Heerenveen í Hollandi. Arnór vann sig inn í lið Heerenven um tvítugsaldurinn en slæm meiðsli settu strik í reikninginn. Hann átti eftir að fara víða og lék á ferli sínum í Svíþjóð, Noregi og Rússlandi áður en Skagamaðurinn lék loks sína fyrstu leiki fyrir uppeldisfélagið ÍA í fyrra. Hann leiddi liðið upp í efstu deild og eftir meiðslahrjáð sumar lék hann sinn síðasta leik í tapi fyrir Val í lokaumferð deildarinnar. Við settumst niður með Arnóri og fórum yfir ferilinn og framhaldið.
Ingvi Þór Sæmundsson fékk þá Atla Viðar Björnsson og Baldur Sigurðsson til að fara yfir nýafstaðið tímabil í Bestu deild karla.
Theodór Elmar Bjarnason setti punkt fyrir aftan 20 ára knattspyrnuferil sinn þegar KR vann 7-0 sigur á HK í lokaumferð Bestu deildar karla síðustu helgi. Ferill hans er skrautlegur en hann hélt utan aðeins 17 ára gamall til stórliðs Celtic í Skotlandi og hefur síðan alls leikið í sex löndum, að Íslandi undanskildu. Hann lítur nú til næsta verkefnis en hann hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari uppeldisfélagsins og verður því á hliðarlínunni í Bestu deildinni að ári.
Birkir Már Sævarsson lék sinn síðasta knattspyrnuleik á ferlinum þegar lið hans Valur vann 6-1 sigur á ÍA í lokaumferð Bestu deildar karla síðustu helgi. Þar hóf hann einnig meistaraflokksferilinn árið 2004, átti síðar eftir að vera í atvinnumennsku í Noregi og Svíþjóð í áratug, og er þá fjórði leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins með 103 landsleiki að baki. Við settumst niður með Birki Má fyrir lokaleikinn við ÍA en hann nú floginn til Svíþjóðar hvar fjölskylda hans hefur búið frá því í desember í fyrra.
Greint var frá því í yfirlýsingu HK á þriðjudagskvöldið síðastliðið að Ómar Ingi Guðmundsson myndi ekki halda áfram þjálfun karlaliðs félagsins í fótbolta sem að féll úr Bestu deildinni á nýafstöðnu tímabili. Það var að ósk Ómars að leiðir myndu skilja á þessum tímapunkti en hann hafði verið aðalþjálfari liðsins síðan árið 2022 og hafði það sama ár stýrt liðinu upp í efstu deild á nýjan leik. Ómar er HK-ingur út í gegn og hefur hann verið það frá sex ára aldri þegar að hann hóf að æfa fótbolta með félaginu sama ár og það var stofnað, á því herrans ári 1992 og á Ómar feril hjá HK sem leikmaður, þjálfari hjá yngri flokkum félagsins og nú síðast sem aðalþjálfari. Rúmt þriggja áratuga samstarf að taka enda en bara tímabundið því HK verður alltaf hluti af Ómari. Í þessu viðtali ræði ég við hann um tímann hjá HK, ást hans á félaginu, ákvörðunina stóru sem og sýn hans á framhaldið, bæði hvað sig varðar en einnig HK. Verið velkomin í Besta sætið. Með mér, Aroni Guðmundssyni og gesti mínum Ómari Inga Guðmundssyni.
Tilgjengelig overalt
Lytt til Podimo på telefonen, nettbrettet, datamaskinen eller i bilen!
Et univers av underholdning på lyd
Tusenvis av lydbøker og eksklusive podkaster
Ingen annonser
Ikke kast bort tid på å lytte til annonser når du lytter til Podimos innhold.
Prøv gratis i 14 dager
Etter prøveperioden kun 99,00 kr / Måned.Avslutt når som helst.
Eksklusive podkaster
Uten reklame
Gratis podkaster
Lydbøker
20 timer i måneden