Til skjalanna

Fröken Dúlla: Ævisaga

31 min · 18. dec. 202531 min
episode Fröken Dúlla: Ævisaga cover

Beskrivelse

Ragnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur um nýjustu bók hennar sem nefnist Fröken Dúlla: Ævisaga. Í bókinni fer Kristín Svava yfir ævi og störf Jóhönnu Knudsen hjúkrunar- og lögreglukonu sem þekktust er fyrir vinnu sína fyrir lögreglu á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. Kristín Svava segir í viðtalinu meðal annars frá heimildaöflun, vinnslu og aðdraganda bókarinnar.

Kommentarer

0

Vær den første til at kommentere

Tilmeld dig nu og bliv en del af Til skjalanna-fællesskabet!

Kom i gang

2 måneder kun 19 kr.

Derefter 99 kr. / måned · Opsig når som helst.

  • Podcasts kun på Podimo
  • 20 lydbogstimer pr. måned
  • Gratis podcasts
Kom i gang

Alle episoder

44 episoder

episode Draugaskipið Jamestown cover

Draugaskipið Jamestown

Símon Sverrisson ræðir við Helga Biering þjóðfræðing og skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um rannsóknir hans á strandi Jamestown árið 1881.  Þann 26. júní árið 1881 strandaði seglskipið Jamestown við Hvalsnes á Reykjanesi. Skipið sem var á leið frá Bandaríkjunum til Liverpool á Englandi var fullt af timbri af mismuanndi tegundum svo sem harðvið. Ólukka virtist fylgja skipinu en úti á rúmsjó datt stýri skipsins af og endaði ferð skipsins eins og áður segir með strandi við Hvalsnes. En hvaða áhrif hafði strandið á byggð í kring og hvað varð um farminn? Í viðtalinu svarar Helgi þeim spurningum ásamt því að segja frá björgunaragerðum, uppboði á munum úr skipinu og þeim sögum sem voru í kringum ballest skipsins.

24. feb. 202628 min
episode Vald hinna veiku cover

Vald hinna veiku

Unnar Ingvarsson fagstjóri á Þjóðskjalasafni ræðir við Guðna Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseta Íslands, um rannsóknir hans á þorskastríðunum og væntanlega bók hans, Vald hinna veiku.  Útfærsla efnahagslögsögu Íslands á 20. öld  leiddu iðulega til átaka við Breta, sem mótmæltu þeim áformum harðlega. Deilurnar náðu hámarki þegar kom til átaka á fiskimiðunum sjálfum, þar sem togvíraklippurnar voru notaðar í fyrsta sinn.   Í viðtalinu fjallar Guðni meðal annars um innanlandspólitíkina á þessum umbrotatímum, átökin við Breta á miðunum og hönnun og notkun hinna leynilegu togvíraklippa sem komu breskum stjórnvöldum í opna skjöldu. Hann dregur jafnframt fram aukna áherslu á rétt strandríkja til að ráða yfir miðum sínum og hvernig samningar reyndust að lokum lykillinn að lausn deilunnar.

28. jan. 202648 min