Grjótkastið
Björgvins Halldórssonar minnst. Baráttan um Ísland framundan, komandi sveitarstjórnarkosningar, veröld sem var í alþjóðamálum, staða efnahagsmála og margt, margt fleira.
Ole ensimmäinen kommentoija
Rekisteröidy nyt ja liity Grjótkastið-yhteisöön!
Kokeilun jälkeen 7,99 € / kuukausi. · Peru milloin tahansa.
68 jaksot
Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga
Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.
Ríkisstjórnin sem vill ekki hlusta
Bergþór Ólason og Ingibjörg Ísaksen um ríkisstjórnina sem hlustar bara alls ekki á nein varnaðarorð, hvaðan sem þau koma, óvænt brotthvarf varaformannsins úr Flokki fólksins, skoðanakannanir og komandi sveitarstjórnarkosningar og magnaðan blaðamannafund forsætisráðherra fyrir utan Jysk í Kópavogi.
Baráttan um Ísland
Hvar ertu litla saklausa Ísland?
Í þessum þætti: Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni? Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt? Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna. Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar? Munu kjósendur vilja nota tækifærið og refsa stjórnarflokkunum fyrir sífellt óvinsælli ríkisstjórn? Af hverju fáum við ekki betri skóla og kennslu, þegar við setjum meira fjármagn í þennan málaflokk en aðrar þjóðir? Hamas-frétt Moggans og átök í undirheimunum, erum við að lenda á sama stað og hin Norðurlöndin? Solaris-málsóknin gegn formanni Sjálfstæðisflokksins, þingsályktunartillaga Karls Gauta ofl um bann við að hylja andlit í opinberu rými. Hundrað ára afmælis landsmálafélagsins Varðar minnst í nýrri bók. Hvað meinar Tony Blair með því að vinstrið verði að gera upp dálæti sitt á íslamistum, sem vilja ekki aðlagast vestrænum samfélögum?
Féllust seðlabankastjóra hendur?
Í fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur framundan? Hversu slæm er staðan í reynd? Af hverju er húsnæðisverð og leiguverð að fara að lækka á næstunni og hvað þýðir þessi staða fyrir umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Í seinni hluta þáttarins koma þau Einar Jóhannes Guðnason og Signý Tryggvadóttir og ræða stöðu mála í Kópavogi og Hafnarfirði í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, þar sem þau eru bæði í framboði.
Kommentit
0Ole ensimmäinen kommentoija
Rekisteröidy nyt ja liity Grjótkastið-yhteisöön!