Kartöflur: Flysjaðar
short_text=None long_text='"Kartöflur: Flysjaðar" er heimildaleikhúsverk eftir sviðslistahópinn CGFC í samstarfi við Halldór Eldjárn. Verkið er unnið upp úr sama rannsóknarbanka og sviðslistaverkið "Kartöflur" sem sett var upp í Borgarleikhúsinu 2019-2020. Var það tilnefnt til Grímunnar 2020 sem leikrit ársins en tekur nú á sig nýja mynd innan útvarpsleikhússins og mega hlustendur búast við áður óbirtu efni sem við kemur kartöflurækt á Íslandi. Í þetta sinn fylgjumst við með CGFC flokknum sinna starfi sínu sem kartöflusérfræðingar á Vísindavefnum, og fylgjum þeim í vettvangsferðir í tíma og rúmi þegar þau leitast við að svara spurningum sem brenna á landsmönnum. \n\nÍ fyrsta þætti fáum við að litast inn á skrifstofu CGFC flokksins sem starfar um þessar mundir við að svara spurningum sem berast inn á borð hjá Vísindavefnum. Það er alltaf skemmtilegt að fylgjast með því hvað CGFC tekur sér fyrir hendur og fáum við nú að fylgjast með flokknum leita svara um kartöflur, en í ár eru 280 ár síðan fyrstu kartöflunni var stungið niður í íslenska mold. Í þættinum eru tekin viðtöl við Hildi Hákonardóttur, textillistakonu og rithöfund, og Dr. Hrefnu Róbertsdóttur, þjóðskjalavörð. Mun hópnum takast að svara öllum spurningunum sannleikanum samkvæmt? Eða munu þau skrökva að spyrjandi landsmönnum? Fylgjumst með.' language='is' valid_from=None
3 jaksot
Kommentit
0Ole ensimmäinen kommentoija
Rekisteröidy nyt ja liity Kartöflur: Flysjaðar-yhteisöön!