Matvælið

Matvælið

Sjálfbærari fiskveiðar og verndun vistkerfa

1 h 10 min · 26 de sep de 2025
Portada del episodio Sjálfbærari fiskveiðar og verndun vistkerfa

Descripción

Haraldur Arnar Einarsson, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun og Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftlagsmála hjá Brim komu til okkar í Matvælið og ræddu meðal annars hafrannsóknir, sjálfbærar fiskveiðar, verndun vistkerfa og aðlögunarhæfni í sjávarútvegi. MarineGuardian verkefnið hefur það að markmiði að efla sjálfbærar fiskveiðar og stuðla að verndun sjávarvistkerfa í Atlantshafi og Norðuríshafi, með aukinni þekkingu og þróun lausna sem draga úr meðafla, brottkasti, olíunotkun, neikvæðum áhrifum á botnvistkerfi, auka afla á sóknareiningu, og tryggja bætta gagnaöflun og úrvinnslu til ákvarðanatöku og framsetningu sjálfbærniskýrslna.

Comentarios

0

Sé la primera persona en comentar

¡Regístrate ahora y únete a la comunidad de Matvælið!

Prueba gratis

Empieza 7 días de prueba

$99 / mes después de la prueba. · Cancela cuando quieras.

  • Podcasts solo en Podimo
  • 20 horas de audiolibros al mes
  • Podcast gratuitos

Todos los episodios

13 episodios

episode ,,Við getum haldið áfram að segja að íslenskt lambakjöt sé best" artwork

,,Við getum haldið áfram að segja að íslenskt lambakjöt sé best"

Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri markaðsstofunnar Íslenskt lambakjöt og Óli Þór Hilmarsson verkefnastjóri hjá Matís eru viðmælendur í Matvælinu að þessu sinni en fyrr á árinu luku þeir vinnu við rannsókn á nýtingarhlutfalli og efnainnihaldi lambakjöts og aukaafurða. Verkefnið var unnið af Matís og markaðsstofunni Íslenskt lambakjöt í nánu samstarfi við afurðastöðvar bæði á norður- og suðurlandi. Verkefninu var hrundið af stað til þess að mögulegt væri að leggja fram ný og traust gögn til að koma í stað þeirra 20-30 ára gömlu gagna sem alla jafna var stuðst við og voru orðin úrelt. Skortur á nýjum og uppfærðum gögnum um nýtingu og næringargildi var farinn að há markaðsstarfi á lambakjöti og hliðarafurðum bæði á innanlandsmarkaði og útflutningsmörkuðum. Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt að hlusta á þessa fagmenn ræða um málið sem er þeim greinilega kært.

16 de ago de 202439 min
episode Betri nýting hliðarhráefna - „þetta er ekki bara eitthvað drasl sem við þurfum að díla við" artwork

Betri nýting hliðarhráefna - „þetta er ekki bara eitthvað drasl sem við þurfum að díla við"

Hildur Inga Sveinsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís er viðmælandi að þessu sinni. Hún fjallar um verðmætin sem leynast í hráefnum sem við getum fengið út úr matvælavinnslu en eru þó ekki aðal efnið sem við erum að vinna með; svokölluð hliðarhráefni. Allt þetta tengir hún við evrópska samstarfsverkefnið Accelwater sem hún vinnur að um þessar mundir. Ísland hefur lengi verið framarlega í nýtingu hliðarhráefna og eitt af þeim hráefnum sem áhugavert er að meta bæði með tækifæri til verðmætasköpunar og umhverfismál fyrir augum er vatn frá t.d. fiskvinnslum og landeldisstöðvum. Verkefnið Accelwater snýr að því að finna lausnir til þess að nýta verðmæti úr vinnsluvatni og besta vatnsnotkun í sjávarútvegi og eldi. Ástríða Hildar fyrir því að koma inntaki Accelwater verkefnisins skýrt og örugglega til skila skín í gegn í þessu viðtali og mega hlustendur því eiga von á fróðlegri og hressandi hlustun.

11 de ene de 202438 min