
IJslands
Cultuur & Vrije Tijd
Tijdelijke aanbieding
Daarna € 9,99 / maandElk moment opzegbaar.
Over Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Laura’s Theme – Lerki og lík
Angelo Badalamenti og David Lynch – Laura Palmer’s theme (from Twin Peaks) Tré, skógur, rökkur. Móða á gleraugum. Blaut laufblöð. Gulir plastborðar flaksa. Grár himinn. Flannelskyrta, keðjusög. Ófelía í sefinu. Þægindi, velmegun, teppi, draumar, hlýja, nærvera. Sjaldan hefur feelgood og hrylling verið blandað jafn vel saman og í sjónvarpsþáttunum Twin Peaks. En heilinn sendir samt […]
Make You Feel My Love – Knúið af kúlusúkk
Bob Dylan – Make You Feel My Love Það er erfitt að skilja Dylan. Djúpur? Já. Nóbelsverðlaunahafi? Já. En samt er hann líka bílastæða-maður. Gaur sem er mest í elementinu sínu í ljótri skyrtu innan um ómerkilega bíla. Samt er hann ekki basic. Það er alltaf eitthvað tvist, einhver súputeningur í vasanum. Fílalag heldur áfram […]
Knockin’ On Heaven’s Door – Þurr steinn grætur
Bob Dylan – Knockin’ On Heaven’s Door Fyrsti í Dylan-svítu. Fógetinn er við dauðans dyr. Hann grefur byssur sínar. Útlagi í Ástralíu-frakka gengur framhjá Monaco á Laugavegi. Þunnur maður brotnar saman í Volkswagen Jetta bifreið. Það er brostið á með Dylan-regni og það mun lemja ykkur fast. Þið verðið löðrunguð eins og í baráttunni við […]
White Christmas – “Let’s Go Have a Coca-Cola”
Bing Crosby – White Christmas Það gengur svo mikið á í lífi okkar að við þurfum stundum pásu, frið, hlé. Við þurfum þetta hlé einu sinni á ári. Jólin eru fyrst og fremst hlé frá veseninu, rifrildinu, stríðinu og stritinu. Þess vegna elskum við hvít jól. Því snjórinn leggur hvíta mottu yfir allt, kallar fram […]
1979 – Goth báðu megin
The Smashing Pumpkins – 1979 Lífið er endalaust. Fyndinn 16 ára gaur djögglar snakkpokum inn í flúorljósum 10-11, tvær stelpur hlæja en meira að honum en með honum. Lífið er endalaust, orkan er endalaus, hláturinn hættir aldrei. En dauðinn er nærri, dauðinn er inn í okkur og með okkur og það er daðrið við dauðann […]
Kies je abonnement
Tijdelijke aanbieding
Premium
20 uur aan luisterboeken
Podcasts die je alleen op Podimo hoort
Gratis podcasts
Elk moment opzegbaar
1 maand voor € 1
Daarna € 9,99 / maand
Premium Plus
Onbeperkt luisterboeken
Podcasts die je alleen op Podimo hoort
Gratis podcasts
Elk moment opzegbaar
Probeer 30 dagen gratis
Daarna € 11,99 / month
1 maand voor € 1. Daarna € 9,99 / maand. Elk moment opzegbaar.