Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa
Ég er farin í sumarfrí og við Emilía sendum ykkur kveðju frá Tene, stay strong and healthy og hafðu gaman ❤️❤️
Be the first to comment
Sign up now and become a member of the Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa community!
Then 99 kr. / month · Cancel anytime.
21 episodes
Fimm atriði sem hjálpa þér að borða betur.
Í þessum stutta þætti fer ég yfir 5 einföld atriði sem geta hjálpað þér að borða betur. Ekki flókið mataræði eða reglur sem er erfitt að fylgja – heldur hlutir sem ég hef séð virka aftur og aftur hjá konum sem vilja líða betur í líkamanum sínum. Við förum yfir hvernig litlar breytingar, eins og að borða reglulega, fá nægilegt prótein og undirbúa sig aðeins fram í tímann, geta haft meiri áhrif en við höldum.
þegar heilbrigður lífstíll býr til streitu
Í þessum þætti langar mig að tala um eitthvað sem ég sé stundum hjá konum í dag. Við vitum meira um heilsu en nokkru sinni fyrr. Við vitum hvað við eigum að borða, við vitum að við eigum að hreyfa okkur og passa svefninn – en stundum verður heilbrigður lífsstíll líka að pressu. Hvernig gerðist það að eitthvað sem átti að láta okkur líða betur varð stundum að öðru verkefni á to-do listanum? Í þættinum tala ég um hvernig líkaminn bregst við streitu, af hverju einfaldara kerfi virkar oft betur til lengri tíma og hvers vegna stöðugleiki skiptir meira máli en fullkomnun. Ég deili líka minni reynslu sem þjálfari og hvernig ég set upp æfingar fyrir konur inni á gurry.is, þar sem áherslan er á raunhæfan lífsstíl sem styður lífið – ekki tekur það yfir. Stundum er lausnin ekki að gera meira. Stundum er lausnin einfaldlega að gera hlutina aðeins einfaldari.
líkaminn fer ekki í uppnám af ástæðulausu.
Við reynum oft að halda áfram þó líkaminn sé að senda merki. Við vinnum meira. Hugsum um aðra. Reynum að vera sterkar. En líkaminn safnar öllu sem við upplifum – streitu, álagi og tilfinningum sem fá ekki rými. Í þessum þætti ræðum við hvernig líkaminn talar við okkur þegar eitthvað þarf að breytast, og hvernig heilun byrjar oft ekki í huganum heldur í líkamanum sjálfum. Við getum hjálpað líkamanum með leiðum sem eru rólegar og það þarf ekki að setja allt á hvolf.
Emilía og Gurrý: Sumarkveðja frá Tene með tengdadótturinni
Þáttur 3: Ayurveda Kapha Dosha
Kapha dosha er uppáhalds fólkið okkar 😍 Hlýjasta og traustasta fólkið er með ríkjandi Kapha. Enn þær þurfa að passa rosalega vel uppá mataræðið og svefninn 🙏
Comments
0Be the first to comment
Sign up now and become a member of the Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa community!