Matvælið

„Þetta eru eiginlega faðernispróf". Erfðagreiningar á eldislaxi á Íslandi

34 min · 25. jan. 2024
episode „Þetta eru eiginlega faðernispróf". Erfðagreiningar á eldislaxi á Íslandi cover

Beskrivelse

Sæmundur Sveinsson er fagstjóri erfða hjá Matís og í þessum þætti af Matvælinu ræðir hann um erfðagreiningar á laxi og verkefni þeim tengdum Í þættinum fer hann yfir lífsferil íslenska laxins og erfðafjölbreytileika hans eftir vatnasvæðum, erfðagreiningar á strokulöxum úr sjókvíaeldi og erfðagreiningar á laxi fyrir svokallaða fiskrækt svo eitthvað sé nefnt. Sæmundi er lagið að fjalla um þessi mál á auðskiljanlegan og skemmtilegan hátt svo að óhætt er að mæla með hlustun fyrir öll!

Kommentarer

0

Vær den første til å kommentere

Registrer deg nå og bli medlem av Matvælið sitt community!

Kom i gang

2 Måneder for 19 kr

Deretter 99 kr / Måned · Avslutt når som helst.

  • Eksklusive podkaster
  • 20 timer lydbøker i måneden
  • Gratis podkaster

Alle episoder

13 Episoder

episode ,,Við getum haldið áfram að segja að íslenskt lambakjöt sé best" cover

,,Við getum haldið áfram að segja að íslenskt lambakjöt sé best"

Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri markaðsstofunnar Íslenskt lambakjöt og Óli Þór Hilmarsson verkefnastjóri hjá Matís eru viðmælendur í Matvælinu að þessu sinni en fyrr á árinu luku þeir vinnu við rannsókn á nýtingarhlutfalli og efnainnihaldi lambakjöts og aukaafurða. Verkefnið var unnið af Matís og markaðsstofunni Íslenskt lambakjöt í nánu samstarfi við afurðastöðvar bæði á norður- og suðurlandi. Verkefninu var hrundið af stað til þess að mögulegt væri að leggja fram ný og traust gögn til að koma í stað þeirra 20-30 ára gömlu gagna sem alla jafna var stuðst við og voru orðin úrelt. Skortur á nýjum og uppfærðum gögnum um nýtingu og næringargildi var farinn að há markaðsstarfi á lambakjöti og hliðarafurðum bæði á innanlandsmarkaði og útflutningsmörkuðum. Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt að hlusta á þessa fagmenn ræða um málið sem er þeim greinilega kært.

16. aug. 202439 min
episode Betri nýting hliðarhráefna - „þetta er ekki bara eitthvað drasl sem við þurfum að díla við" cover

Betri nýting hliðarhráefna - „þetta er ekki bara eitthvað drasl sem við þurfum að díla við"

Hildur Inga Sveinsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís er viðmælandi að þessu sinni. Hún fjallar um verðmætin sem leynast í hráefnum sem við getum fengið út úr matvælavinnslu en eru þó ekki aðal efnið sem við erum að vinna með; svokölluð hliðarhráefni. Allt þetta tengir hún við evrópska samstarfsverkefnið Accelwater sem hún vinnur að um þessar mundir. Ísland hefur lengi verið framarlega í nýtingu hliðarhráefna og eitt af þeim hráefnum sem áhugavert er að meta bæði með tækifæri til verðmætasköpunar og umhverfismál fyrir augum er vatn frá t.d. fiskvinnslum og landeldisstöðvum. Verkefnið Accelwater snýr að því að finna lausnir til þess að nýta verðmæti úr vinnsluvatni og besta vatnsnotkun í sjávarútvegi og eldi. Ástríða Hildar fyrir því að koma inntaki Accelwater verkefnisins skýrt og örugglega til skila skín í gegn í þessu viðtali og mega hlustendur því eiga von á fróðlegri og hressandi hlustun.

11. jan. 202438 min