Örlítið í ólagi
Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi snerta um 1 af hverjum 7 mæðrum á Íslandi – en samt er þögnin oft háværari en hjálpin. Í þessum þætti skoðum við bæði klínískar og tilfinningalegar hliðar: áhættuþætti, einkenni, úrræði og meðferð – en líka mannlegu sögurnar, skömmina, afneitunina og vonina. Ég opna mig um mína eigin reynslu af fæðingarþunglyndi og deili því sem hjálpaði mér að stíga upp úr þessu erfiða tímabili í lífi mínu. Þátturinn er fyrir alla sem hafa upplifað þetta sjálfir – og líka þá sem vilja styðja, skilja og sjá betur inn í líðan foreldra á viðkvæmu skeiði lífsins. Þú ert ekki ein. Þú ert ekki einn. Og það er til hjálp. Heimildir og fræðsla * Kristín Rut – Vísir.is: "Kristín fékk alvarlegt fæðingarþunglyndi: 'Þrengdi að hálsinum á yngri stelpunni'" * Sigríður Hrund – Vísir.is: "Var með fæðingarþunglyndi í rúm átta ár" * Hlaðvarpsþáttur *Einmitt* #49: Sigríður Hrund – "Heppin að fá fæðingarþunglyndi þrisvar" Fræðsluvefir: * Heilsuvera (landlæknisembættið) * Mín líðan / Heilsugæsla * Geðhjálp * Miðstöð foreldra og barna (Fyrstu tengsl)
20 episodios
Comentarios
0Sé la primera persona en comentar
¡Regístrate ahora y únete a la comunidad de Örlítið í ólagi!