Örlítið í ólagi

#20 Fyrirmynd – hver er hún í raun?

26 min · 12 de feb de 2026
Portada del episodio #20 Fyrirmynd – hver er hún í raun?

Descripción

Ég hef aldrei fundið manneskju sem var 100% mín fyrirmynd. Og kannski var vandamálið að ég hélt að fyrirmynd ætti að vera fullkomin. Ég hélt hún ætti að vera stöðug, örugg, rétt, „rétt gerð“. En lífið virkar ekki þannig. Í þessum þætti tala ég um: – Af hverju 30% af manneskju getur verið nóg – Af hverju fólk sem særði mig kenndi mér jafn mikið og þeir sem studdu mig – Af hverju börnin mín eru stundum sterkari en ég – Af hverju ég dáist að Cardi B fyrir að skammast sín ekki fyrir fortíðina sína Kannski er fyrirmynd ekki manneskja sem gerir allt rétt. Kannski er hún manneskja sem tekur ábyrgð. Sem þorir að breyta. Sem þorir að viðurkenna mistök. Sem velur að slíta keðjur svo börnin hennar þurfi ekki að bera þær. Ég er ekki fullkomin. En ég gefst ekki upp. Og í dag get ég sagt það án þess að skammast mín: Ég er mín eigin fyrirmynd.

Comentarios

0

Sé la primera persona en comentar

¡Regístrate ahora y únete a la comunidad de Örlítið í ólagi!

Prueba gratis

Empieza 7 días de prueba

$99 / mes después de la prueba. · Cancela cuando quieras.

  • Podcasts solo en Podimo
  • 20 horas de audiolibros al mes
  • Podcast gratuitos

Todos los episodios

20 episodios

episode #20 Fyrirmynd – hver er hún í raun? artwork

#20 Fyrirmynd – hver er hún í raun?

Ég hef aldrei fundið manneskju sem var 100% mín fyrirmynd. Og kannski var vandamálið að ég hélt að fyrirmynd ætti að vera fullkomin. Ég hélt hún ætti að vera stöðug, örugg, rétt, „rétt gerð“. En lífið virkar ekki þannig. Í þessum þætti tala ég um: – Af hverju 30% af manneskju getur verið nóg – Af hverju fólk sem særði mig kenndi mér jafn mikið og þeir sem studdu mig – Af hverju börnin mín eru stundum sterkari en ég – Af hverju ég dáist að Cardi B fyrir að skammast sín ekki fyrir fortíðina sína Kannski er fyrirmynd ekki manneskja sem gerir allt rétt. Kannski er hún manneskja sem tekur ábyrgð. Sem þorir að breyta. Sem þorir að viðurkenna mistök. Sem velur að slíta keðjur svo börnin hennar þurfi ekki að bera þær. Ég er ekki fullkomin. En ég gefst ekki upp. Og í dag get ég sagt það án þess að skammast mín: Ég er mín eigin fyrirmynd.

12 de feb de 202626 min
episode #19 Emotions vs. Feelings – er munur og hver er hann? artwork

#19 Emotions vs. Feelings – er munur og hver er hann?

Emotions vs. Feelings – er munur og hver er hann? Við segjum oft: „Ég er svo stressuð“ eða „ég er með kvíða“ – en vitum við raunverulega hvað við erum að finna? Í þessum þætti skoðum við hvort það sé munur á emotions og feelings – og hver hann er. Við förum í heimsókn til möndulsins (amygdala), gamla öryggisvarðarins í heilanum sem ýtir á neyðarhnappinn jafnvel þegar við erum ekki í neinni hættu. Við skoðum líka hvernig búddismi kennir okkur að vera með tilfinningum – í stað þess að flýja þær – og hvað það þýðir að mæta sjálfri sér með núvitund og samkennd í eigin garð. Gígja kemur með mér í þennan þátt, og saman veltum við upp spurningum eins og: * Hvernig lærum við að þekkja tilfinningar? * Hvers vegna eru þær oft svo flóknar? * Og hvernig förum við að því að hlusta í stað þess að laga? Velkomin í örlítið í ólagi 💗

29 de sep de 20251 h 20 min
episode #17 Hvers vegna líður mér svona? – Fæðingarþunglyndi og skömm artwork

#17 Hvers vegna líður mér svona? – Fæðingarþunglyndi og skömm

Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi snerta um 1 af hverjum 7 mæðrum á Íslandi – en samt er þögnin oft háværari en hjálpin. Í þessum þætti skoðum við bæði klínískar og tilfinningalegar hliðar: áhættuþætti, einkenni, úrræði og meðferð – en líka mannlegu sögurnar, skömmina, afneitunina og vonina. Ég opna mig um mína eigin reynslu af fæðingarþunglyndi og deili því sem hjálpaði mér að stíga upp úr þessu erfiða tímabili í lífi mínu. Þátturinn er fyrir alla sem hafa upplifað þetta sjálfir – og líka þá sem vilja styðja, skilja og sjá betur inn í líðan foreldra á viðkvæmu skeiði lífsins. Þú ert ekki ein. Þú ert ekki einn. Og það er til hjálp. Heimildir og fræðsla * Kristín Rut – Vísir.is: "Kristín fékk alvarlegt fæðingarþunglyndi: 'Þrengdi að hálsinum á yngri stelpunni'" * Sigríður Hrund – Vísir.is: "Var með fæðingarþunglyndi í rúm átta ár" * Hlaðvarpsþáttur *Einmitt* #49: Sigríður Hrund – "Heppin að fá fæðingarþunglyndi þrisvar" Fræðsluvefir: * Heilsuvera (landlæknisembættið) * Mín líðan / Heilsugæsla * Geðhjálp * Miðstöð foreldra og barna (Fyrstu tengsl)

29 de jul de 20251 h 19 min