Dette tilbudet har dessverre utløpt
Start en gratis prøveperiode under i stedet

Íslenski Draumurinn
Podkast av Íslenski Draumurinn
Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum, viðskiptamönnum og einstaklingum sem hafa þorað að elta sína drauma og hafa náð langt á sínu sviði. Við förum yfir þeirra sögu, velgengnina og mistökin. Meira um hlaðvarpið inn á www.islenskidraumurinn.is
Prøv gratis i 0 days
99,00 kr / Måned etter prøveperioden.Avslutt når som helst.
Alle episoder
46 Episoder
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski Draumurinn ræðir Sigurður Sindri við Sindra Má Finnbogason, stofnanda og frumkvöðulinn á bak við miðasölukerfið Tix. Í þættinum greinir Sindri frá fyrstu kynnum sínum af forritun, uppbyggingu eigin hugbúnaðarfyrirtækis, og þeirri alþjóðlegu útrás sem fylgdi í kjölfarið. Ferill hans spannar þrjá áratugi og ber vott um óvenjulegan sjálflærdóm, seiglu og víðsýni í rekstri.

Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins lítum við aftur á þrjá áhrifamikla gesti sem komu í fyrstu þáttunum – hver með sína einstöku sögu, sýn og leið að árangri. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa lagt ótrúlega vinnu í að byggja upp rekstur frá grunni og eru allir ólík dæmi um hvað frumkvöðlastarf getur falið í sér. Hvort sem það er í hótelrekstri, bílaleigum eða fasteignastarfsemi – þá er eitt sem skín í gegn: þrautseigja, framtíðarsýn og drifkraftur. Í þessum þætti lítum á þegar Steinþór Jónsson (Hótel Keflavík), Magnús Sverrir Þorsteinsson (Blue Car Rental) og Þorsteinn Ingi Einarsson (Steinabón, Garður Apartments) deila reynslu sinni af því að byggja upp eigin fyrirtæki frá grunni og hvað hefur drifið þá áfram á leiðinni að árangri.

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski draumurinn stígur Sigurður Sindri Magnússon skref til baka og fer yfir þrjá eftirminnilega viðmælendur sem hafa komið fram á árinu: Jónas Hagan Guðmundsson, Kristján Inga Mikaelsson og Hjálmar Gíslason. Þátturinn er áminning um breiddina og dýptina í íslensku frumkvöðlaumhverfi – og hversu mikla innblástur er að finna í þeim sem þora að láta til sín taka.

Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn fáum við innsýn í ævintýralegt og lærdómsríkt ferðalag Hjálmars Gíslasonar – eins reynslumesta frumkvöðuls Íslands og stofnanda GRID, sem vinnur að næstu byltingu í töflureiknum. Hjálmar hefur áratugareynslu af því að umbreyta hugmyndum í raunverulegar vörur og fyrirtæki, og í þættinum deilir hann einlæglega sinni sögu – frá því að selja fyrsta tölvuleikinn sinn 14 ára gamall, yfir í að selja hugbúnaðarfyrirtæki sitt til stórfyrirtækis í Bandaríkjunum.

Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn kynnumst við Emin Kadri, 22 ára atvinnuboxara sem þrátt fyrir ungan aldur er þegar orðinn þekkt nafn í íslenskri íþróttasenu. Emin hefur barist tvo atvinnubardaga – og unnið þá báða – og margir sjá hann sem einn efnilegasta hnefaleikamann Íslands. Lestu meira og skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is
Dette tilbudet har dessverre utløpt
Start en gratis prøveperiode under i stedet
Prøv gratis i 0 days
99,00 kr / Måned etter prøveperioden.Avslutt når som helst.
Eksklusive podkaster
Uten reklame
Gratis podkaster
Lydbøker
20 timer i måneden