Kartöflur: Flysjaðar
short_text=None long_text='"Kartöflur: Flysjaðar" er heimildaleikhúsverk eftir sviðslistahópinn CGFC í samstarfi við Halldór Eldjárn. Verkið er unnið upp úr sama rannsóknarbanka og sviðslistaverkið "Kartöflur" sem sett var upp í Borgarleikhúsinu 2019-2020. Var það tilnefnt til Grímunnar 2020 sem leikrit ársins en tekur nú á sig nýja mynd innan útvarpsleikhússins og mega hlustendur búast við áður óbirtu efni sem við kemur kartöflurækt á Íslandi. Í þetta sinn fylgjumst við með CGFC flokknum sinna starfi sínu sem kartöflusérfræðingar á Vísindavefnum, og fylgjum þeim í vettvangsferðir í tíma og rúmi þegar þau leitast við að svara spurningum sem brenna á landsmönnum. \n\nÍ öðrum þætti er áfram fylgst með vinnu CGFC flokksins á Vísindavefnum í Kartölfuvikunni, en í ár eru jú 280 ár frá því að fyrstu kartöflunni var stungið niður í íslenska mold. Í síðasta þætti leysti hópurinn sögulega ráðgátu og reyndi að bæta orðsporð kvenskörungsins Vilhelmínu Lever á Íslendingabók, og það er aldrei vita hvort við verðum einhvers kartöfluvísari í þætti dagsins. Í þættinum er tekið viðtal við Leif Bjarka Björnsson, framleiðslustjóra Þykkvabæjar. Mun hópnum takast að svara kartöfluspurningunum sem brenna á vörum þjóðarinnar? Eða koma þau sér í lífshættulegt klandur?' language='is' valid_from=None
3 Episoder
Kommentarer
0Vær den første til å kommentere
Registrer deg nå og bli medlem av Kartöflur: Flysjaðar sitt community!