islandsk
Sport
Begrænset tilbud
Derefter 99 kr. / månedOpsig når som helst.
Læs mere Klefinn með Silju Úlfars
Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar. Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið! https://klefinn.is/https://www.instagram.com/klefinn.is/
70 episoder
Júlían J.K. Jóhansson - Kraftlyftingar
Júlían J.K. Jóhannsson er þekktur fyrir framúrskarandi árangur í kraftlyftingum. Júlían hefur ekki aðeins sett Íslands- og Evrópumet, heldur hefur hann þrisvar sinnum sett heimsmet í réttstöðulyftu. Þá á Júlían á tvö brons frá Heimsmeistaramótinu í Kraftlyftingum og þá var hann Íþróttamaður ársins 2019. Júlían ræðir ferilinn sinn, hvernig hann byrjaði í kraftlyftingum, stórmótin og "skákina" bak við tjöldin, að toppa á réttum tíma, næringin, lyfjamál og margt fleira. Þá segir hann okkur betur frá kraftlyftingum og fer yfir hverja grein fyrir sig og hvað þú getur gert til að bæta þig í þeim, þá hefur líkamsbygging áhrif á greinarnar. Júlían á 415 kg í hnébeygju, 332,5 kg í bekkpressu og 409 kg í réttstöðulyftu. Júlían er með Kraftlyftingarskólann [https://www.kraftlyftingaskolinn.is/] þar sem hann þjálfar og kennir fólki Kraftlyftingar á öllum aldri. Júlían hitti Silju og þau tóku video þar sem hann fer yfir ákveðin grunn atriði í Kraftlyftingum, þar fór hann yfir Hnébeygju, Bekkpressu og Réttstöðulyftu. Þú getur horft á video hér [https://www.youtube.com/watch?v=WO7x36i_nzc]- LYFTINGARÆFING MEÐ JÚLÍAN [https://youtu.be/WO7x36i_nzc]. Hvetjum ykkur til að hlusta og horfa á sterkasta fasteignasala landsins og þú mátt endilega deila. Fylgdust með á instagram: @klefinn.is [https://www.instagram.com/klefinn.is/]@julianjkj [https://www.instagram.com/julianjkj/]@kraftlyftingaskolinn [https://www.instagram.com/kraftlyftingaskolinn/]@siljaulfars [https://www.instagram.com/siljaulfars/] Hægt að horfa á þáttinn hér. [https://youtu.be/b2ttVcyM7K8]
Emil Hallfreðs - fyrrum knattspyrnumaður og “skólastjóri”
Emil Hallfreðsson fyrrum knattspyrnumaður kom í Klefann og ræddi "passionin" sín, frá knattspyrnu, í umboðsmennsku, ítalska matargerð og fleira. Emil var atvinnumaður í knattspyrnu, hann spilaði fyrir íslenska landsliðið og hefur verið með annan fótinn á Ítalíu síðustu ár. Þá er hann með Knattspyrnuskóla á Ítalíu þar sem hann fer með ungt knattspyrnufólk út og þau æfa við bestu aðstæður. Emil ræðir atvinnumennskuna, fer yfir liðin og þróun ferilsins síns, landsliðið og allskonar áskoranir. Þá ræðir hann einnig Olifa [https://www.instagram.com/olifafood/], fyrirtæki sem hann og eiginkona hans Ása Regins [https://www.instagram.com/asaregins/] reka með mikilli ástríðu. Hvetjum ykkur til að hlusta og deila. Fylgdust með á instagram: @klefinn.is [https://www.instagram.com/klefinn.is/] @emil_hallfredsson [https://www.instagram.com/emil_hallfredsson/] @siljaulfars [https://www.instagram.com/siljaulfars/]
Fanney Þóra - Handbolti og krabbamein
Fanney Þóra var nýbökuð móðir á bleiku skýi með þriggja mánaða gamalt barn þegar hún greinist með Choriocarcinoma krabbamein og þarf strax að hefja meðferð. Fanney segir frá greiningunni, að vera nýbökuð móðir með krabbamein og hvað stuðningur fjölskyldunnar í baráttunni skiptir miklu máli. Hún ræðir endurhæfinguna og ljósið og að byggja sig upp aftur þegar þú hefur týnt þér. Fanney hefur alltaf verið í handbolta og talar um hvaða hlutverk handboltinn og Kaplakriki spilaði í öllu þessu ferli. Fanney segir einlægt frá þessari lífsreynslu sinni og við hvetjum þig til að hlusta og deila, við þurfum öll á góðum sigursögum að halda. Þú getur hlustað á hana, en þá er einnig hægt að horfa á þáttinn á YouTube og á Spotify, athugið að í video má einnig sjá myndir og textaskilaboð frá ferlinu. Hvetjum ykkur til að styrkja Krabbameinsfélagið með að kaupa Bleiku Slaufuna [https://www.krabb.is/bleika-slaufan]. Takk fyrir að hlusta Fylgdu okkur á instagram: @klefinn.is [https://www.instagram.com/klefinn.is/] @fanneythora [https://www.instagram.com/fanneythora/] @siljaulfars [https://www.instagram.com/siljaulfars/]
Mist Edvardsdóttir - Fótbolti og Krabbamein
Mist Edvardsdóttir var landsliðskona í knattspyrnu þegar hún greindist með Hodgkins eitlakrabbamein aðeins 23 ára gömul. Mist fer yfir ferilinn sinn, en á hátindi ferilsins þegar hún var að ná markmiðunum sínum kom krabbameins greiningin. Hún segir okkur frá ferlinu og hvernig fótboltinn hjálpaði henni í þessari baráttu, Mist missti aðeins af þrem leikjum á tímabilinu í miðri krabbameinsmeðferð. Mist segir hreinskilnislega frá þessari lífsreynslu sinni og það er ekki hægt annað en að fyllast aðdáun að hlusta á frásögn hennar. En myndi hún vilja breyta einhverju? Það er hægt að hlusta og horfa á þáttinn, á YouTube má sjá myndir og textaskilaboð frá ferlinu. Hvetjum ykkur til að styrkja Krabbameinsfélagið með að kaupa Bleiku Slaufuna [https://www.krabb.is/bleika-slaufan]. Takk fyrir að hlusta, þú mátt endilega deila, hver veit hver þarf að fá sigursögu einn daginn. Fylgdu okkur á instagram: @klefinn.is [https://www.instagram.com/klefinn.is/] @mistedvards [https://www.instagram.com/mistedvards/] @siljaulfars [https://www.instagram.com/siljaulfars/]
Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum
Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Tókýó dagana 13.-21. september. Sigurbjörn Árni sem við þekkjum öll af sjónvarpsskjánum þegar hann lýsir mótunum með sinni einstakri snilld. Sigurbjörn æfði frjálsar og eftir að hafa fylgst með öllum þessum stórmótum síðustu ára þá er hægt að kalla hann sérfræðinginn. Bjössi og Silja fóru yfir keppnisgreinarnar og sigurstranglegasta íþróttafólkið og ýmislegt fleira. Það getur oft verið skemmtilegra að horfa á íþróttafólkið þegar maður þekkir aðeins til þess. Ísland á þrjá keppendur á mótinu * Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppir í sleggjukasti 14. september * Sindri Hrafn Guðmundsson keppir í spjótkasti 17. september * Erna Sóley Gunnarsdóttir keppir í kúluvarpi - 20. september Við vonumst til að þetta geri mótið enn meira spennandi fyrir ykkur. Gleðilegt HM Fylgdu endilega Klefanum á instagram: @klefinn.is [https://www.instagram.com/klefinn.is/]
Vælg dit abonnement
Mest populære
Begrænset tilbud
Premium
20 timers lydbøger
Podcasts kun på Podimo
Ingen reklamer i podcasts fra Podimo
Opsig når som helst
1 måned kun 9 kr.
Derefter 99 kr. / måned
Premium Plus
100 timers lydbøger
Podcasts kun på Podimo
Ingen reklamer i podcasts fra Podimo
Opsig når som helst
Prøv gratis i 7 dage
Derefter 129 kr. / måned
1 måned kun 9 kr. Derefter 99 kr. / måned. Opsig når som helst.