Joe Grimson: Saga af svikum

Myrtu þeir Eggert? - Seinni þáttur: Krufningarskýrslan

54 min · 11 de abr de 2023
Portada del episodio Myrtu þeir Eggert? - Seinni þáttur: Krufningarskýrslan

Descripción

Líf fjölskyldu Eggerts J Jónssonar kollsteyptist einn blíðan sumardag árið 1962 þegar heimilisfaðirinn varð bráðkvaddur. Afkomendur hans, börn og barnabörn, leita enn svara um andlátið sextíu árum síðar. Ný gögn í málinu hafa varpað ljósi á glæpsamlega vanrækslu þegar kom að rannsókn fráfallsins, en spurningin sem liggur í loftinu er sú sama og verið hefur um aldir alda: Hver hagnast á glæpnum? Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.

Comentarios

0

Sé la primera persona en comentar

¡Regístrate ahora y únete a la comunidad de Joe Grimson: Saga af svikum!

Empezar

2 meses por 1 €

Después 4,99 € / mes · Cancela cuando quieras.

  • Podcasts exclusivos
  • 20 horas de audiolibros / mes
  • Podcast gratuitos

Todos los episodios

8 episodios

Portada del episodio Fjórði þáttur: Frá Súrínam til Írlands

Fjórði þáttur: Frá Súrínam til Írlands

Á tíunda áratugnum réðst írska lögreglan í gríðarlega umfangsmikla rannsókn á fyrirhuguðum fíkniefnainnflutningi og ákærði í fyrsta sinn fyrir samsæri um slíkan innflutning. Það kemur ef til vill á óvart að það var Íslendingur sem fyrstur manna var ákærður fyrir téð lagaákvæði, Sigurður Arngrímsson. Málið teygir sig yfir hálfan hnöttinn og er ein stærsta ráðgátan á ævintýralegum ferli Jósafats Arngrímssonar. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson Viðmælendur í þessum þætti: Svanhildur Konráðsdóttir, Alfreð Sturla Böðvarsson og Einar Kárason. Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Úlfur Grönvöld og Sindri Freysson.

21 de dic de 202240 min
Portada del episodio Þriðji þáttur: Nígeríumálið

Þriðji þáttur: Nígeríumálið

Við höldum nú áfram að rekja ævintýrilegan ferill Jósafats Arngrímssonar. Hann settist að á Írlandi, breytti nafni sínu í Joseph Grimson, yfirleitt nefndur Joe Grimson, og tók til óspilltra málanna. Með nýtt nafn, nýja fjölskyldu og nýjan leikvöll þar sem enginn í fjármálalífinu þekkti hann, var framtíðin einsog óskrifað blað, já eða óútfylltur víxill. Í þættinum er rakið umfangsmikið sakamál sem snerist um sölu á skreið til Nígeríu frá norskum smábæ og við sögu koma írskir gangsterar, þyrluflug, herragarður, og sýndarfyrirtæki í kvikmyndabransanum. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Silja Beite Løken, Finnbogi Hvammdal Lárusson, Atli Már Steinarsson og Sindri Freysson

21 de dic de 202240 min