Góðan daginn Grindvíkingur

#15 Otti Rafn Sigmarsson

1 h 17 min · 16 de abr de 2025
Portada del episodio #15 Otti Rafn Sigmarsson

Descripción

Í þessum þætti af Góðan daginn Grindvíkingar ræðum við við Otta Rafn Sigmarsson, framkvæmdastjóra HP flutninga og einn af burðarásunum í starfi Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Otti hefur verið í framlínu björgunarstarfa í Grindavík í áratugi og stóð vaktina þegar allt breyttist þann 10. nóvember 2023. Í viðtalinu rifjar hann upp æskuárin í Grindavík, fyrsta útkallið, áskoranirnar sem fylgdu rýmingunni og hvernig hann leiddi skipulagningu aðgerðanna með reynslu og yfirvegun að vopni. Hann talar einnig um vináttuna, félagsskapinn og trúna á að Grindavík rísi aftur.

Comentarios

0

Sé la primera persona en comentar

¡Regístrate ahora y únete a la comunidad de Góðan daginn Grindvíkingur!

Prueba gratis

Empieza 7 días de prueba

$99 / mes después de la prueba. · Cancela cuando quieras.

  • Podcasts solo en Podimo
  • 20 horas de audiolibros al mes
  • Podcast gratuitos

Todos los episodios

17 episodios

episode #14 Sigurður Rúnar Karlsson artwork

#14 Sigurður Rúnar Karlsson

„Ég held að framtíð Grindavíkur sé björt – jafnvel bjartari en áður.“ Í þessum þætti af Góðan daginn, Grindvíkingar ræðum við við Sigurð Rúnar Karlsson, forstöðumann þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar – oft kallaðan Sigga Garðhúsum. Sigurður var fyrsti maðurinn sem snéri aftur í bæinn eftir rýmingu þann 11. nóvember 2023. Þar tók hann fyrstu skrefin í viðgerðum og uppbyggingu sem hann hefur stýrt af festu og jákvæðni síðan. Hann segir frá æskuárunum í Garðhúsum, áhrifum hamfaranna á sitt eigið heimili og þeirri von sem hann ber í brjósti fyrir framtíð bæjarins. Þátturinn fjallar um bjartsýni, þrautsegju og trú á samfélagið – og sýnir okkur hvernig verkvit og vilji geta orðið burðarás í endurreisn.

9 de abr de 202550 min
episode #13 Jóhanna Lilja Birgisdóttir, framkvæmdastýra þjónustuteymis Grindavíkinga artwork

#13 Jóhanna Lilja Birgisdóttir, framkvæmdastýra þjónustuteymis Grindavíkinga

Jóhanna Lilja Birgisdóttir, sálfræðingur og framkvæmdastýra þjónustuteymis Grindvíkinga, ólst upp í Grindavík og býr yfir sterkum tilfinningalegum tengslum við heimabæinn, þrátt fyrir að hafa búið víða síðustu áratugi. Jóhanna fer yfir æskuárin í Grindavík sem hafa verið einstaklega hlý og mótandi þar sem samvera, náttúra og íþróttir gegndu stóru hlutverki. Lífið í litla sjávarplássinu var ríkt af tækifærum og samhug. Jóhanna lýsir bernsku þar sem allir tóku þátt, hvort sem var í íþróttum, tónlist eða kirkjustarfi. Náttúran hafði einnig djúp áhrif og hún minnist Einidals og verunnar í Þórktötlustaðahverfi með hlýju. Að lokum vonar hún að reynslan, hversu sársaukafull sem hún hafi verið, verði ekki það sem brýtur fólk niður, heldur það sem mótar, styrkir og tengir. Og að Grindvíkingar, hvar sem þeir eru í dag, finni öryggi og frið á ný.

2 de abr de 202548 min