Joe Grimson: Saga af svikum

Myrtu þeir Eggert? - Fyrri þáttur

49 min · 11. april 2023
episode Myrtu þeir Eggert? - Fyrri þáttur cover

Beskrivelse

Valdatafl, vanefndir og pólitískar hrókeringar Keflavík var bæjarfélag í örum vexti þegar ungur og frambærilegur Sjálfstæðismaður, Eggert J Jónsson, var ráðinn sem bæjarstjóri og flutti með konu sinni og þremur börnum suður með sjó að hefja nýtt líf. Hann naut vinsælda í bænum en pólitísk undanbrögð áttu eftir að valda því að hann tók við embætti bæjarfógeta og hóf að sækja til saka menn, og sekta fólk sem áður hafði mátt eiga von á því að sleppa auðveldlega frá löngum armi laganna. Sá aðdragandi að andláti Eggerts kann að skipta sköpum um eftirleikinn.

Kommentarer

0

Vær den første til å kommentere

Registrer deg nå og bli medlem av Joe Grimson: Saga af svikum sitt community!

Prøv gratis

Prøv gratis i 14 dager

99 kr / Måned etter prøveperioden. · Avslutt når som helst.

  • Eksklusive podkaster
  • 20 timer lydbøker i måneden
  • Gratis podkaster

Alle episoder

8 Episoder

episode Fjórði þáttur: Frá Súrínam til Írlands cover

Fjórði þáttur: Frá Súrínam til Írlands

Á tíunda áratugnum réðst írska lögreglan í gríðarlega umfangsmikla rannsókn á fyrirhuguðum fíkniefnainnflutningi og ákærði í fyrsta sinn fyrir samsæri um slíkan innflutning. Það kemur ef til vill á óvart að það var Íslendingur sem fyrstur manna var ákærður fyrir téð lagaákvæði, Sigurður Arngrímsson. Málið teygir sig yfir hálfan hnöttinn og er ein stærsta ráðgátan á ævintýralegum ferli Jósafats Arngrímssonar. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson Viðmælendur í þessum þætti: Svanhildur Konráðsdóttir, Alfreð Sturla Böðvarsson og Einar Kárason. Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Úlfur Grönvöld og Sindri Freysson.

21. des. 202240 min
episode Þriðji þáttur: Nígeríumálið cover

Þriðji þáttur: Nígeríumálið

Við höldum nú áfram að rekja ævintýrilegan ferill Jósafats Arngrímssonar. Hann settist að á Írlandi, breytti nafni sínu í Joseph Grimson, yfirleitt nefndur Joe Grimson, og tók til óspilltra málanna. Með nýtt nafn, nýja fjölskyldu og nýjan leikvöll þar sem enginn í fjármálalífinu þekkti hann, var framtíðin einsog óskrifað blað, já eða óútfylltur víxill. Í þættinum er rakið umfangsmikið sakamál sem snerist um sölu á skreið til Nígeríu frá norskum smábæ og við sögu koma írskir gangsterar, þyrluflug, herragarður, og sýndarfyrirtæki í kvikmyndabransanum. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Silja Beite Løken, Finnbogi Hvammdal Lárusson, Atli Már Steinarsson og Sindri Freysson

21. des. 202240 min