Grjótkastið

Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga

48 min · 18. Mai 2026
Episode Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga Cover

Beschreibung

Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.

Kommentare

0

Sei die erste Person, die kommentiert

Melde dich jetzt an und werde Teil der Grjótkastið-Community!

Loslegen

2 Monate für 1 €

Dann 4,99 € / Monat · Jederzeit kündbar.

  • Podcasts nur bei Podimo
  • 20 Stunden Hörbücher / Monat
  • Alle kostenlosen Podcasts

Alle Folgen

68 Folgen

Episode Hvar ertu litla saklausa Ísland? Cover

Hvar ertu litla saklausa Ísland?

Í þessum þætti: Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni? Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt? Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna. Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar? Munu kjósendur vilja nota tækifærið og refsa stjórnarflokkunum fyrir sífellt óvinsælli ríkisstjórn? Af hverju fáum við ekki betri skóla og kennslu, þegar við setjum meira fjármagn í þennan málaflokk en aðrar þjóðir? Hamas-frétt Moggans og átök í undirheimunum, erum við að lenda á sama stað og hin Norðurlöndin? Solaris-málsóknin gegn formanni Sjálfstæðisflokksins, þingsályktunartillaga Karls Gauta ofl um bann við að hylja andlit í opinberu rými. Hundrað ára afmælis landsmálafélagsins Varðar minnst í nýrri bók. Hvað meinar Tony Blair með því að vinstrið verði að gera upp dálæti sitt á íslamistum, sem vilja ekki aðlagast vestrænum samfélögum?

31. März 20261 h 14 min