Kartöflur: Flysjaðar
short_text=None long_text='"Kartöflur: Flysjaðar" er heimildaleikhúsverk eftir sviðslistahópinn CGFC í samstarfi við Halldór Eldjárn. Verkið er unnið upp úr sama rannsóknarbanka og sviðslistaverkið "Kartöflur" sem sett var upp í Borgarleikhúsinu 2019-2020. Var það tilnefnt til Grímunnar 2020 sem leikrit ársins en tekur nú á sig nýja mynd innan útvarpsleikhússins og mega hlustendur búast við áður óbirtu efni sem við kemur kartöflurækt á Íslandi. Í þetta sinn fylgjumst við með CGFC flokknum sinna starfi sínu sem kartöflusérfræðingar á Vísindavefnum, og fylgjum þeim í vettvangsferðir í tíma og rúmi þegar þau leitast við að svara spurningum sem brenna á landsmönnum. \n\nÍ þriðja þætti færum við okkur út fyrir veggi skrifstofunnar og fáum að fylgjast með því hvernig vinna CGFC flokksins teygir anga sína út í samfélagið. Við fáum að heyra af sögu kartöflubóndans Helgu Gísladóttur í þættinum í Ljósi Flögunnar í umsjá Spíru Gullaugadóttur og Halldór Eldjárn stingur á yrkjum samtímans í þættinum Heimsspírum, og heyrum svo útsendingu frá afhendingarathöfn í Atvinnu-og nýsköpunarráðuneytinu þar sem CGFC flokkurinn afhendir ráðherra portrett af Helgu Gísladóttur. Að lokum heyrum við frá framleiðsluferli froðusnakks, en í þættinum er tekið viðtal við Sigurjón Dagbjartsson, framkvæmdarstjóra Iðnmarks. Mun hópnum takast að halda vinnu sinni á Vísindavefnum? Eða er tími þeirra sem starfsmenn á skrifstofu liðinn þegar kartöfluvikan tekur loks enda?' language='is' valid_from=None
3 Folgen
Kommentare
0Sei die erste Person, die kommentiert
Melde dich jetzt an und werde Teil der Kartöflur: Flysjaðar-Community!