Forsidebilde av showet Klefinn með Silju Úlfars

Klefinn með Silju Úlfars

Podkast av Silja Úlfars

islandsk

Sport

Prøv gratis i 14 dager

99 kr / Måned etter prøveperioden.Avslutt når som helst.

  • 20 timer lydbøker i måneden
  • Eksklusive podkaster
  • Gratis podkaster
Prøv gratis

Les mer Klefinn með Silju Úlfars

Í klefanum þá skoðum við hvernig við náum árangri og komumst nær markmiðunum okkar. Í Klefanum þá talar allt íþróttafólk sama tungumálið! https://klefinn.is/https://www.instagram.com/klefinn.is/

Alle episoder

70 Episoder

episode Júlían J.K. Jóhansson - Kraftlyftingar artwork

Júlían J.K. Jóhansson - Kraftlyftingar

Júlían J.K. Jóhannsson er þekktur fyrir framúrskarandi árangur í kraftlyftingum. Júlían hefur ekki aðeins sett Íslands- og Evrópumet, heldur hefur hann þrisvar sinnum sett heimsmet í réttstöðulyftu. Þá á Júlían á tvö brons frá Heimsmeistaramótinu í Kraftlyftingum og þá var hann Íþróttamaður ársins 2019.  Júlían ræðir ferilinn sinn, hvernig hann byrjaði í kraftlyftingum, stórmótin og "skákina" bak við tjöldin, að toppa á réttum tíma, næringin, lyfjamál og margt fleira. Þá segir hann okkur betur frá kraftlyftingum og fer yfir hverja grein fyrir sig og hvað þú getur gert til að bæta þig í þeim, þá hefur líkamsbygging áhrif á greinarnar.  Júlían á 415 kg í hnébeygju, 332,5 kg í bekkpressu og 409 kg í réttstöðulyftu.  Júlían er með Kraftlyftingarskólann [https://www.kraftlyftingaskolinn.is/] þar sem hann þjálfar og kennir fólki Kraftlyftingar á öllum aldri. Júlían hitti Silju og þau tóku video þar sem hann fer yfir ákveðin grunn atriði í Kraftlyftingum, þar fór hann yfir Hnébeygju, Bekkpressu og Réttstöðulyftu. Þú getur horft á video hér  [https://www.youtube.com/watch?v=WO7x36i_nzc]- LYFTINGARÆFING MEÐ JÚLÍAN [https://youtu.be/WO7x36i_nzc].  Hvetjum ykkur til að hlusta og horfa á sterkasta fasteignasala landsins og þú mátt endilega deila.  Fylgdust með á instagram: @klefinn.is [https://www.instagram.com/klefinn.is/]@julianjkj [https://www.instagram.com/julianjkj/]@kraftlyftingaskolinn [https://www.instagram.com/kraftlyftingaskolinn/]@siljaulfars [https://www.instagram.com/siljaulfars/] Hægt að horfa á þáttinn hér.  [https://youtu.be/b2ttVcyM7K8]

31. okt. 2025 - 1 h 22 min
episode Emil Hallfreðs - fyrrum knattspyrnumaður og “skólastjóri” artwork

Emil Hallfreðs - fyrrum knattspyrnumaður og “skólastjóri”

Emil Hallfreðsson fyrrum knattspyrnumaður kom í Klefann og ræddi "passionin" sín, frá knattspyrnu, í umboðsmennsku, ítalska matargerð og fleira.  Emil var atvinnumaður í knattspyrnu, hann spilaði fyrir íslenska landsliðið og hefur verið með annan fótinn á Ítalíu síðustu ár. Þá er hann með Knattspyrnuskóla á Ítalíu þar sem hann fer með ungt knattspyrnufólk út og þau æfa við bestu aðstæður.  Emil ræðir atvinnumennskuna, fer yfir liðin og þróun ferilsins síns, landsliðið og allskonar áskoranir. Þá ræðir hann einnig Olifa [https://www.instagram.com/olifafood/], fyrirtæki sem hann og eiginkona hans Ása Regins [https://www.instagram.com/asaregins/] reka með mikilli ástríðu.  Hvetjum ykkur til að hlusta og deila.  Fylgdust með á instagram: @klefinn.is [https://www.instagram.com/klefinn.is/] @emil_hallfredsson [https://www.instagram.com/emil_hallfredsson/] @siljaulfars [https://www.instagram.com/siljaulfars/]

24. okt. 2025 - 1 h 17 min
episode Fanney Þóra - Handbolti og krabbamein artwork

Fanney Þóra - Handbolti og krabbamein

Fanney Þóra var nýbökuð móðir á bleiku skýi með þriggja mánaða gamalt barn þegar hún greinist með Choriocarcinoma krabbamein og þarf strax að hefja meðferð. Fanney segir frá greiningunni, að vera nýbökuð móðir með krabbamein og hvað stuðningur fjölskyldunnar í baráttunni skiptir miklu máli. Hún ræðir endurhæfinguna og ljósið og að byggja sig upp aftur þegar þú hefur týnt þér. Fanney hefur alltaf verið í handbolta og talar um hvaða hlutverk handboltinn og Kaplakriki spilaði í öllu þessu ferli.  Fanney segir einlægt frá þessari lífsreynslu sinni og við hvetjum þig til að hlusta og deila, við þurfum öll á góðum sigursögum að halda.  Þú getur hlustað á hana, en þá er einnig hægt að horfa á þáttinn á YouTube og á Spotify, athugið að í video má einnig sjá myndir og textaskilaboð frá ferlinu.  Hvetjum ykkur til að styrkja Krabbameinsfélagið með að kaupa Bleiku Slaufuna [https://www.krabb.is/bleika-slaufan]. Takk fyrir að hlusta  Fylgdu okkur á instagram: @klefinn.is [https://www.instagram.com/klefinn.is/] @fanneythora [https://www.instagram.com/fanneythora/] @siljaulfars [https://www.instagram.com/siljaulfars/]

17. okt. 2025 - 1 h 7 min
episode Mist Edvardsdóttir - Fótbolti og Krabbamein artwork

Mist Edvardsdóttir - Fótbolti og Krabbamein

Mist Edvardsdóttir var landsliðskona í knattspyrnu þegar hún greindist með Hodgkins eitlakrabbamein aðeins 23 ára gömul.  Mist fer yfir ferilinn sinn, en á hátindi ferilsins þegar hún var að ná markmiðunum sínum kom krabbameins greiningin. Hún segir okkur frá ferlinu og hvernig fótboltinn hjálpaði henni í þessari baráttu, Mist missti aðeins af þrem leikjum á tímabilinu í miðri krabbameinsmeðferð.  Mist segir hreinskilnislega frá þessari lífsreynslu sinni og það er ekki hægt annað en að fyllast aðdáun að hlusta á frásögn hennar.  En myndi hún vilja breyta einhverju?  Það er hægt að hlusta og horfa á þáttinn, á YouTube má sjá myndir og textaskilaboð frá ferlinu.  Hvetjum ykkur til að styrkja Krabbameinsfélagið með að kaupa Bleiku Slaufuna [https://www.krabb.is/bleika-slaufan]. Takk fyrir að hlusta, þú mátt endilega deila, hver veit hver þarf að fá sigursögu einn daginn.  Fylgdu okkur á instagram: @klefinn.is [https://www.instagram.com/klefinn.is/] @mistedvards [https://www.instagram.com/mistedvards/] @siljaulfars [https://www.instagram.com/siljaulfars/]

13. okt. 2025 - 1 h 18 min
episode Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum artwork

Sigurbjörn Árni fer yfir Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum

Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Tókýó dagana 13.-21. september. Sigurbjörn Árni sem við þekkjum öll af sjónvarpsskjánum þegar hann lýsir mótunum með sinni einstakri snilld. Sigurbjörn æfði frjálsar og eftir að hafa fylgst með öllum þessum stórmótum síðustu ára þá er hægt að kalla hann sérfræðinginn.  Bjössi og Silja fóru yfir keppnisgreinarnar og sigurstranglegasta íþróttafólkið og ýmislegt fleira. Það getur oft verið skemmtilegra að horfa á íþróttafólkið þegar maður þekkir aðeins til þess. Ísland á þrjá keppendur á mótinu  * Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppir í sleggjukasti 14. september * Sindri Hrafn Guðmundsson keppir í spjótkasti 17. september * Erna Sóley Gunnarsdóttir keppir í kúluvarpi - 20. september Við vonumst til að þetta geri mótið enn meira spennandi fyrir ykkur.  Gleðilegt HM  Fylgdu endilega Klefanum á instagram: @klefinn.is [https://www.instagram.com/klefinn.is/]

11. sep. 2025 - 2 h 10 min
Enkelt å finne frem nye favoritter og lett å navigere seg gjennom innholdet i appen
Enkelt å finne frem nye favoritter og lett å navigere seg gjennom innholdet i appen
Liker at det er både Podcaster (godt utvalg) og lydbøker i samme app, pluss at man kan holde Podcaster og lydbøker atskilt i biblioteket.
Bra app. Oversiktlig og ryddig. MYE bra innhold⭐️⭐️⭐️

Velg abonnementet ditt

Mest populær

Premium

20 timer lydbøker

  • Eksklusive podkaster

  • Ingen annonser i Podimo shows

  • Avslutt når som helst

Prøv gratis i 14 dager
Deretter 99 kr / måned

Prøv gratis

Premium Plus

100 timer lydbøker

  • Eksklusive podkaster

  • Ingen annonser i Podimo shows

  • Avslutt når som helst

Prøv gratis i 14 dager
Deretter 169 kr / måned

Prøv gratis

Bare på Podimo

Populære lydbøker

Prøv gratis

Prøv gratis i 14 dager. 99 kr / Måned etter prøveperioden. Avslutt når som helst.