
360 Heilsa
Podcast von Rafn Franklin Johnson
Nimm diesen Podcast mit

Mehr als 1 Million Hörer*innen
Du wirst Podimo lieben und damit bist du nicht allein
Mit 4,7 Sternen im App Store bewertet
Alle Folgen
69 Folgen
Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa [http://patreon.com/360heilsa] --------------------------- Í þessum þætti fæ ég íslenska kuldakonunginn Andra Iceland til mín í annað skiptið. Í þetta sinn víkkum við umræðuna úr kuldanum yfir í hita, öndun, hugarfar, streitu og margt fleira. Við ræðum einnig um áhugaverða ráðstefnu sem Andri stendur fyrir og verður haldin í Hörpu 18. febrúar næstkomandi.

Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa [http://patreon.com/360heilsa] Gestur þáttarins er Apríl Harpa Smáradóttir. Apríl er yoga kennari, meðeigandi fyrirtækisins cocobutts.is [http://cocobutts.is/] og framkvæmdastjóri Sólir yogastöðvar á Granda. Í þættinum ræðum við um 9 ára ferðalag Aprílar um Asíu, barneignir og uppeldi á Balí, fræðin og heimspekina á bakvið yoga, mikilvægi þess að hlusta á eigið innsæi og margt fleira.

Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa [http://patreon.com/360heilsa] Í þessum þætti fer ég yfir þær svokölluðu "biohacking" græjur sem ég nota reglulega til að bæta eða viðhalda heilsunni og bæta árangur og vellíðan. Ég hef prófað mikið af allskonar mismunandi græjum en það er stór hluti af þeim sem hafa fljótlega endað ofan í skúffu. En eftirfarandi listi af 9 biohacking vörum er eitthvað sem ég sé mikið notagildi í og nota að staðaldri eða mjög reglulega til að viðhalda heilsunni, líða betur og ná betri árangri.

Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa [http://patreon.com/360heilsa] Jens K. Guðmundsson er læknir með sérmenntun í háls, nef og eyrnalækningum. Hann hefur yfir 15 ára reynslu í læknageiranum og vann um tíma í (HNE) skurðlækningum og á bráðadeild. Jens hefur á síðastliðnum árum fært sig meira yfir í functional medicine og sótti nám í þeim fræðum hjá Kresser Institute í bandaríkjunum. Hann lærði einnig heildræn heilsufræði hjá CHEK institute í bretlandi og hefur nýtt það samhliða functional medicine nálgun á sína skjólstæðinga. Í dag starfar hann hjá Nordic Clinic - nordicclinic.is [http://www.nordicclinic.is/]

Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þennan þátt í heild sinni og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu - www.patreon.com/360heilsa [http://www.patreon.com/360heilsa] Í þessum þætti fer ég yfir 9 atriði sem gætu verið ástæða þess að þú ert ekki að ná markmiðum þínum þegar kemur að fitutapi. Sumir vilja meina að þeir hafi látið á allt reyna en geti ekki losnað við aukakílóin. Oftar en ekki eru þó ákveðin atriði sem eru í blindblett eða "blindspot" hjá okkur sem koma í veg fyrir að við náum þeim árangri sem við teljum okkur eiga skilið. Þessi þáttur er unninn í samstarfi við: www.lopidraumur.is [http://www.lopidraumur.is] - 10% afsláttur í netverslun með kóða "360heilsa"