Podcast von Morðaforði
Isländisch
Kostenlos bei Podimo
Starte jetzt und verbinde dich mit deinen Lieblingspodcaster*innen
Mehr Morðaforði
Í Morðaforða hittast tvær morðista vinkonur til að sötra og spjalla um morð.
45 Folgen
41. Bjúgfen og Survivor
Þáttur 41 er mættur eftir langt og gott sumarfrí hjá okkur morðsystrum. Höfum saknað þess svo að hittast, sötra og spjalla um viðbjóð. Við skemmtum okkur allavega konunglega við upptökur á þættinum, vonum að skemmtið ykkur líka. Skál! Þátturinn er í boði Ölverk og við smökkuðum hvorki meira né minna en þrjá ólíka bjóra frá þeim, en það voru Eilífur, Rótandi og Quexcomate. Mælum hiklaust með! Við erum báðar staddar í Bandaríkjunum samt líka Mexikó. Raðmorðinginn Ronald Dominique og Survivor producerinn Bruce Beresford-Redman. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi
40. Heilagrufl og Sigti
Þáttur 40 er mættur en hann er sá síðasti áður en við tökum okkur smá sumarfrí. Þátturinn er í boði Viking Brugghús og við smökkuðum á Bróðir (Milkshake IPA) og Sumaröli (Hveitibjór með jarðaberja vibes). Einstaklega góðir báðir tveir, þeir fá hæstu meðmæli frá okkur bjórsystrum. En annars vorum við báðar í Bandaríkjunum með nokkuð keimlík mál. Stella tók fyrir mál hans Kevin Davis á meðan Lára fjallaði um morðið á Iönu Kasian. Alveg hrottalegur viðbjóður sem er kannski viðeigandi svona korter í frí. Takk fyrir að hlusta kæru vinir, skál fyrir ykkur! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi
39. Bakaraofnar og Hákarlar
Alltaf er það sama viðbjóðslega gleðin á miðvikudögum, ekki satt? Þessi þáttur er í boði Viking Brugghús og við smökkuðum frá þeim bjórinn Pink (Mango og Cherry White Ale). Hann er alveg einstaklega góður og sumarlegur! Lára tók fyrir mál frá Finnlandi og Stella brá sér til Ástralíu. Bæði málin eiga það sameiginlegt að vera óupplýst svo hvað segiði kæru hlustendur um að leysa þessi mál kannski bara með okkur? Skál fyrir ykkur! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi
38. Tannlæknar og Forsetar
Þátturinn í dag er í boði Ölvisholt Brugghúss og veislan heldur bara áfram! En við smökkuðum Hercule Peró (Peru og Engifer Skyrsúr) og Forseta (Session IPA). Mælum hiklaust með því að þið smakkið öll! En Stella tók Indverskt mál og fjallaði um dularfulla morðið á Aarushi Talwar, en það hefur t.d. verið kallað hið indverska Jon Benet Ramsey. Lára braut blað í sögu Morðaforða og tók fyrir fyrsta íslenska málið! Takk fyrir að hlusta, skál í botn og restina í hárið vinir. facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi
37. Eltihrellar og Limsugur
Þáttur dagsins er í boði Ölvisholt Brugghúss og það var sannkölluð veisla hjá okkur. Við brögðuðum á TVEIMUR eðalbjórum sem heita þeim ljúfu nöfnum Baldur (Munich Helles Lager) og Freyja (Bláberja Witbier). Við mælum hiklaust með því að þið smakkið þessa, Freyjan var sérstaklega skemmtileg! Annars erum við báðar staddar í BNA og herregud hvað það leynist mikill viðbjóður þar alltaf. Lára sagði frá dularfullum dauða Morgan Ingram og Stella frá einstaklega sorglegum dauða Cassie Jo Stoddart. Allt saman svo erfitt en samt eitthvað svo áhugavert. Skál fyrir ykkur! facebook.com/mordafordi instagram.com/mordafordi