Podcast von Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands
Isländisch
Kostenlos bei Podimo
Starte jetzt und verbinde dich mit deinen Lieblingspodcaster*innen
Mehr Til skjalanna
Hvað er Þjóðskjalasafn Íslands? Forvitnileg skjöl, sögulegir viðburðir og nýjar rannsóknir
44 Folgen
Nýr gagnagrunnur um alþingiskosningar 1874-1903
Unnar Ingvarsson fagstjóri ræðir við Hrafnkel Lárusson sagnfræðing um nýjan vefgagnagrunn um alþingiskosningar á árunum 1874–1903, sem opnaður var þann 1. maí á vef Þjóðskjalasafns Íslands. Þar má finna upplýsingar sem varpa ljósi á kosningar, frambjóðendur og stjórnmálaþróun á fyrstu áratugum íslensks lýðræðis. Í þættinum er fjallað um tilurð gagnagrunnsins, hvaða heimildir liggja honum að baki og hvernig hann getur nýst bæði fræðafólki og almenningi sem vill kynna sér sögu íslenskra kosninga.
Strand spítalaskipsins Sankti Páls á Meðallandsfjörum árið 1899
Í þessum þætti ræðir Símon Sverrisson við Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur sagnfræðing og verkefnastjóra heimildaútgáfu á Þjóðskjalasafni Íslands um strand franska spítalaskipsins Sankti Páls. Sankti Páll var með glæsilegri skipum sem komu á Íslandsmið en það var þrímastra seglskip sem strandaði í sinni þriðju ferð til Íslands árið 1899. Hið fagra skip vakti eðlilega mikla athygli þar sem það lá í fjörunni í Meðallandi sem kölluð hefur verið skipakirkjugarður Evrópu. Jóhanna segir frá strandinu, björgun áhafnar og verðmæta, og uppboði strandgóssins sem var óvenju mikið.
Draugaskipið Jamestown
Símon Sverrisson ræðir við Helga Biering þjóðfræðing og skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um rannsóknir hans á strandi Jamestown árið 1881. Þann 26. júní árið 1881 strandaði seglskipið Jamestown við Hvalsnes á Reykjanesi. Skipið sem var á leið frá Bandaríkjunum til Liverpool á Englandi var fullt af timbri af mismuanndi tegundum svo sem harðvið. Ólukka virtist fylgja skipinu en úti á rúmsjó datt stýri skipsins af og endaði ferð skipsins eins og áður segir með strandi við Hvalsnes. En hvaða áhrif hafði strandið á byggð í kring og hvað varð um farminn? Í viðtalinu svarar Helgi þeim spurningum ásamt því að segja frá björgunaragerðum, uppboði á munum úr skipinu og þeim sögum sem voru í kringum ballest skipsins.
Vald hinna veiku
Unnar Ingvarsson fagstjóri á Þjóðskjalasafni ræðir við Guðna Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseta Íslands, um rannsóknir hans á þorskastríðunum og væntanlega bók hans, Vald hinna veiku. Útfærsla efnahagslögsögu Íslands á 20. öld leiddu iðulega til átaka við Breta, sem mótmæltu þeim áformum harðlega. Deilurnar náðu hámarki þegar kom til átaka á fiskimiðunum sjálfum, þar sem togvíraklippurnar voru notaðar í fyrsta sinn. Í viðtalinu fjallar Guðni meðal annars um innanlandspólitíkina á þessum umbrotatímum, átökin við Breta á miðunum og hönnun og notkun hinna leynilegu togvíraklippa sem komu breskum stjórnvöldum í opna skjöldu. Hann dregur jafnframt fram aukna áherslu á rétt strandríkja til að ráða yfir miðum sínum og hvernig samningar reyndust að lokum lykillinn að lausn deilunnar.
Fröken Dúlla: Ævisaga
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur um nýjustu bók hennar sem nefnist Fröken Dúlla: Ævisaga. Í bókinni fer Kristín Svava yfir ævi og störf Jóhönnu Knudsen hjúkrunar- og lögreglukonu sem þekktust er fyrir vinnu sína fyrir lögreglu á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. Kristín Svava segir í viðtalinu meðal annars frá heimildaöflun, vinnslu og aðdraganda bókarinnar.